Hjónin + 1
2.10.09
 

Smá pása

Næ bara enganvegin að halda úti þessari síðu og barnalandssíðunni þannig að ég ætla að setja þessa í smá pásu. Enda er facebook orðið upplýsingamiðillinn í dag og flestir hættir að kíkja á þessi blogg. Fyrir fréttir af familíunni bendi ég á:

http://barnaland.is/barn/88563/

Eins bendi ég á heimasíma okkar hjóna sem og gemsana sem finnast í símaskránni.

Hulda Björg  18:19  



22.8.09
 

Reykjavíkurmaraþon



Þá er ég búinn að klára fyrsta maraþonið. Langþráður áfangi eftir alla æfingarnar síðustu mánuði. Hlaupið gékk mjög fyrir utan síðustu 10 km, þá var ég frekar þreyttur. Kláraði hlaupið á 3:49:44, sem er fín tími fyrir fyrsta skiptið. Náði markmiðinu að vera undir 4 tímum, því er varla hægt annað en að vera ánægður.

Frekar stirrður núna, en það hlýtur að lagst fljótlega.

Stefán  19:46  



18.8.09
 

Barnalandssíða


Var að skella saman síðu á barnalandi fyrir litla mann sem er á leiðinni..

http://barnaland.is/barn/88563/

Set líklega flestar myndir þangað inn þar sem ég get stjórnað aðganginum að síðunni þar en ekki hérna.

Hulda Björg  10:45  



8.7.09
 

Er ekki undarlegt??

Að náttúruauðlyndir sjósins eru í eigu landsmanna og engir erlendir fjárfestar mega eiga í þeim en það sama gildi ekki fyrir aðrar náttúruauðlyndir svo sem raf- og varmaorkuna okkar?

..finnst þetta undarlegt...

Hulda Björg  13:21  



27.6.09
 

Óléttu- og sónarmyndir

Var að bæta við inná myndasíðuna okkar óléttumyndum og svo plús venjulegum 2D sónarmyndum :D

Hulda Björg  10:14  



24.6.09
 

3D sónar

Okkur hlakkar svo til að sjá strákinn sem ég geng með að við skelltum okkur í þrívíddarsónar hjá 9 mánuðum fyrir rúmri viku. Jeminn hvað þetta var gaman! Reyndar tók sónarinn sjálfur rosalega snöggann tíma, drengurinn var alveg til í að láta mynda sig í bak og fyrir og þegar við gengum út vorum við ekki viss um að þetta hefði verið þess virði þar sem þetta er ansi dýrt. En þegar við komum heim og fórum að skoða myndirnar og myndböndin skipti ég alveg um skoðun. Sá þá hversu margar myndir við fengum og vitaskuld fannst mér þetta flottasti drengur sem hefur verið myndaður þannig að þetta var bara gaman!

Var að setja myndirnar inná Flick fyrir alla að sjá...

Hulda Björg  11:54  
 

GO Jóhanna GO!

Samstarfskona mín er algjör snillingur í að hoppa en seinustu helgi var hún á móti í frjálsum íþróttum og vann þar langstökk og var þriðja í þrístökkinu... Á smáþjóðaleikunum núna fyrir skömmu vann hún svo þrístökkið og var í öðru sæti í langsökkinu. Finnst hún bara brill :D Þvílíkt dugleg að æfa svona mikið samhliða því að vera í fullri vinnu við að þróa mæliaðferðir.. skil ekki hvar hún stelur fleiri stundum til að gera þetta allt!

Til hamingju skvís :D

Hulda Björg  11:52  



20.5.09
 

Gott að hann hætti..

..í hungurverkfalli maðurinn þarna frá Alsír.

Viðurkenni fúslega að það sem ég er að fara að segja er helvíti hart en ég ætla bara að láta það flakka...

Finnst að fólk eigi ekki að ná að þvinga sínum málum í gegn með ógnunum. Viðurkenni fúslega að þetta ferli er allt of langt og mætti stytta en það er jafnlangt fyrir alla. Það er meira að segja búið að taka málið hans fyrir einu sinni og hann hefur verið uppvís að skjalafalsi.. finnst honum virkilega líklegt að hann fái að vera? Satt að segja finnst mér hann vera búinn að fyrirgera sínum rétti að fá að vera hérna.. ég verð ekki sátt ef þetta tekst hjá honum.

Gera þetta þá ekki bara allir?

Hulda Björg  14:00  






E-mail


Stefán
Hulda


Myndir

Blogg

Ella
Ása
Dísa
Gyða
Björk
Tótla
Urður
Örvar
Heiða
Hrund
Bikingpiger
Dagný Ásta
Anna og Abbi

Gríslingar

Bríet
Sara Líf
Aníta Líf
Sölvi Freyr
Adam Ernir
Sandra Dís
Hera Hrönn
Brynjar Ingi
Viktor Ágúst
Natalía Ruth
Skagabumba
Hrafnkell og Kári
Tristan og Marinó
Daníel, Pétur og Kári
Alex þór og Andri Týr
Arnar Logi og Atli Hrafn
Ísak Tumi og Marit Erla
Svala og Skarphéðinn Orri
Birkir Örn, Þorsteinn Hilmir og Þórunn Erla